20.2.2009 | 07:53
Bláfjöll - Vasagangan
Skrapp upp í Bláfjöll í gær, þar var slydda og ansi blautt, reyndi ekki að fara á skíðin en snjórinn er og verður nægur þegar styttir upp og kólnar aðeins. Til að byrja með henta sjóskíði betur á Leirunni en þar er stór tjörn sem við komumst þó framhjá.
Er ekki einhver húsasmiður í félaginu? Það þarf að gera lagfæringar á húsinu í Bláfjöllum einkum þarf að taka í gegn gluggana sem halda ekki vatni, ÍTR sem á húsið hefur spurt hvort við getum gert úttekt á því sem þarf að gera og kostnaðaráætlun miðað við að við sjáum um verkið.
Nú hefst Vasavikan á sunnudaginn með Ungdomsvasan og þar á Ísland tvo verðuga fulltrúa í fyrsta sinn (svo ég viti) það eru þau Heiða og Gústaf Darra og Fríðu börn. Á sunnudaginn eftir viku verður svo Vasagangan og er spurning hvort við getum komið einhversstaðar saman og horft á útsendingu sænska sjónvarpsins en startið er 07 á okkar tíma. Kannski einhverjum sportbarnum í morgunmat og fram að hádegi t.d. ???
Þóroddur F.
Athugasemdir
Ég er húsasmiður. Get hjálpað til við það
Kv.
Þórhallur
Þórhallur Ásmundsson (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 12:55
Sæll og takk fyrir það, heyrumst í síma og finnum út hvenær þér hentar að skoða málið. Sími minn er 861 9561
Kv.
ÞFÞ
Þóroddur F. (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 13:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.