27.11.2009 | 07:58
Taumerki Ulls eru komin
Vil vekja athygli á því að ný sending af merki Ulls, sem ætlað er til að sauma á fatnað, er komin og kostar merkið kr. 1200. Hólmfríður Þóroddsdóttir sér um merkin og er hægt að hafa samband við hana t.d. í gegnum netfangið darriogfrida@internet.is
Farið varlega á hjólaskíðunum í myrkrinu og verið dugleg að dansa snjódansinn. Spennandi að vita hvort nægilega snjóar í Bláfjöllum um helgina til þess að hægt verði að fara á skíði. Fréttir verða hér um leið og eitthvað verður að frétta.
Þóroddur F.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.