14.1.2009 | 12:54
Meira um Bláfjöll í dag.
Ég er búinn að koma því á framfæri að ef veður skánar ( hefur lægt um 1m frá kl 10) komi nýjar fréttir um spor um kaffileytið inn á síðu Bláfjalla. (Fer eftir vinnu hvernig sem viðrar, frá Rauðavatni 16:30)
Þóroddur
Athugasemdir
Ætla einnig að mæta eftir vinnu.
k. Guðmundur Arnar
Arnar (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 15:52
Við pabbi vorum uppfrá um þrjúleytið og þá var búið að troða fínan stuttan hring. Fínt færi og nógur snjór en reyndar svolítill skafrenningur og svo mikil þoka að stundum var óljóst hvað snéri upp og hvað niður ;)
Hrefna Katrín (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 22:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.