Orkugangan 2008‏

Sælt veri gönguskíðafólk,

Orkugangan 2008
Í samstarfi við Landsvirkjun.

Orkugangan er almennings skíðaganga sem verður haldin laugardaginn 29. mars
kl. 10:00 og hefst gangan við Kröfluvirkjun í Mývatnssveit. Genginn verður
60 km hringur á Kröflusvæðinu og er þetta því lengsta skíðagangan hér á
landi. Mývetningur Íþrótta og Ungmennafélag og Björgunarsveitin Stefán eru
framkvæmdaaðilar göngunnar. Gengið verður að mestu um ósnortið land þar sem
sjá má margar náttúruperlur sem og svæði sem jarðskjálftar og eldsumbrot
hafa mótað og má víða sjá merki um þá orku sem enn býr í þessu svæði. Leiðin
verður troðin fyrir þátttakendur og lagt verður að minnsta kosti eitt spor
alla leið. Drykkjarstöðvar verða með reglulegu millibili þar sem boðið
verður upp á orkudrykki og súkkulaði. Allir fá svo súpu og brauð eftir að
komið er í mark. Þátttökugjald er 4.000 kr. og er innfalið í því aðgangur að
Jarðböðunum við Mývatn eftir gönguna og lokahóf með léttum veitingum sem
hefst kl. 18:00 í Hótel Reynihlíð þar sem veittar verða viðurkenningar og
dreginn verður út einn heppinn þátttakandi sem hlýtur utanlandsferð að eigin
vali í vinning. Skíðasvæðið við Kröflu verður opið fram eftir degi en þar er
togbraut og góð aðstaða til skíðaiðkunar.
Nægt gistirými er í sveitinni og eru sumir ferðaþjónustuaðilarnir með
„Orkugöngutilboð“ þar sem í boði er helgarpakki með gistingu og fæði á góðu
verði.
Allar nánari upplýsingar og skráning er hjá Upplýsingamiðstöð staðarins í
síma 464 4390 eða í netfangið info@visitmyvatn.is eða
orkuganga@visitmyvatn.is Hægt verður að fylgjast með framkvæmdum á
http://visitmyvatn.is/vidburdir/page/orkugangan


Þorgeir

Mývatnsstofa ehf
Hraunvegi 8
660 Mývatn
Sími: 4644390 fax: 4644392
info@visitmyvatn.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mæli með Orkugöngunni. Gekk hana í fyrra. Legg til að þeir Ullungar sem ætla að fara reyni að sameinast í bíl og minnka þannig kostnað fyrir utan að félagsskapurinn er ómissandi. Megi Páskahelgin verða okkur hagstæð. Komst ekki á laugardag í fjöllin og leið vítiskvalir fyrir bragðið (þvílíkt veður)

Skarphéðinn P. Óskarsson (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband