1.2.2008 | 11:32
Fræðslukvöld um skíðagöngu
Skíðagöngufélagið Ullur og Ferðafélag Íslands standa fyrir fræðslukvöldi um skíðagöngu miðvikudaginn 6. febrúar í sal FÍ Mörkinni 6 kl. 20.00. Leiðbeint verður um ferðalög á gönguskíðum, búnað, fatnað, öryggisatriði og komið inn á vetrarferðamennsku almennt. Einnig verður fjallað um skíðagöngu sem líkamsrækt og keppni. Þá verður farið yfir skíðabúnað og hvað þarf að hafa í huga við val á búnaði jafnt til ferðalaga sem göngu í tilbúnu spori. Sýnt verður hvernig borið er á gönguskíði. Að lokum verður fjallað um Íslandsgönguna á skíðum, fjallað um skíðaferðir FÍ og sýnt myndband frá Vasagöngunni. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.